Reykjavík full logo

Tímalína máls

1

Í samráðsferli

Í vinnslu

Samráði lokið

Viltu senda inn álit?

Samráðið er opið og öllum er frjálst að taka þátt. Álit eru birt jafnóðum og þau berast.

Boð um þátttöku (9)

Tengiliður

hrund.thorsdottir@reykjavik.is

Samráð 32

Álitsfrestur: 1.5.2026

Fjöldi álita: 0

Drög að stefnu

Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara

Endurskoðun málstefnu Reykjavíkurborgar

Stutt kynning

Hér gefst borgarbúum og öðrum hagaðilum tækifæri til að koma á framfæri ábendingum varðandi drög að endurskoðaðri málstefnu Reykjavíkurborgar. Um er að ræða endurskoðun málstefnu sem samþykkt var árið 2017.

Nánari upplýsingar

Ákveðið var að óska eftir umsögnum um endurskoðaða málstefnu Reykjavíkurborgar í gegnum samráðsgátt, enda málefnið með víða skírskotun og þjóðfélagsaðstæður afar breyttar síðan málstefnan var samþykkt árið 2017.

Við endurskoðun stefnunnar var meðal annars horft til leiðbeininga Íslenskrar málnefndar og annarrar stefnumörkunar Reykjavíkurborgar. Þá var leitað til ýmissa sérfræðinga og hagaðila. Markmið starfshópsins var að móta einfalda og aðgengilega stefnu, með útskýringum og ítarefni í greinargerð sem fylgir stefnunni auk þess að móta skýra aðgerðaáætlun sem byggði á stefnunni sjálfri og ákalli hagaðila um þróun í málaflokknum.

Íbúar í Reykjavík og aðrir hagaðilar eru hvattir til að senda inn ábendingar við meðfylgjandi tillögu að endurskoðaðri málstefnu Reykjavíkurborgar og aðgerðaáætlun með henni. Hér til vinstri má nálgast umrædd gögn.

Til að einfalda úrvinnslu er óskað eftir því að við skil á ábendingum sem varða einstakar greinar sé vísað í viðkomandi kafla í drögum að endurskoðaðri stefnu og gerð sé, í þeim tilvikum sem það á við, tillaga að textaviðbótum eða breytingum.