Tímalína máls
Í samráðsferli
Í vinnslu
Samráði lokið
Í vinnslu
Álitsfrestur er liðinn. Álit voru birt jafnóðum og þau bárust.
Boð um þátttöku (6)
Fylgiskjöl
Tengiliður
Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar
birgitta.rut.skulad.hjorvar@reykjavik.is
Samráð 23
Álitsfrestur: 26.9.2025
Fjöldi álita: 7
Breyting á reglum
Umhverfis- og skipulagssvið
Enduskoðun á samþykkt um skilti í Reykjavík
Stutt kynning
Vinna við nýja samþykkt um skilti í Reykjavík er í gangi. Hún opnar á fleiri útfærslur skilta, skýra gildandi leiðbeiningar, og skerpa á atriðum sem ekki voru tekin fyrir í gildandi samþykkt.
Nánari upplýsingar
Samþykkt um skilti í Reykjavík eru reglur sem gilda um m.a. stærðir skilta og staðsetningu með tilliti til ýmissa þátta er varða skipulag. Vinna við endurskoðun á samþykkt um skilti í Reykjavík snertir marga fleti í stjórnsýslu borgarinnar og hafa fulltrúar frá deild skipulags, deild samgöngustjóra, deild borgarhönnunar, deild lögfræði og stjórnsýslu og deild afnota og eftirlits.
Helstu breytingar sem orðið hafa við endurskoðun samþykktarinnar eru meðal annars þær að heimilaðar stærðir skilta eru auknar á flestum landnotkunarsvæðum. Að auki er búið að sameina flokkana auglýsingaskilti og þjónustuskilti í einn flokk auglýsingaskilta. Samþykktin er þar að auki orðin einfaldari en þó þannig að þeir aðilar sem þurfa að nýta sér samþykktina eigi að geta lesið sér til um það hvað skal hafa í huga þegar sótt er um byggingarleyfi fyrir skilti.
Tilgangur þess að endurskoðuð samþykkt um skilti í Reykjavík er sett í samráðsgátt er til þess að leitast eftir ábendingum og athugasemdum frá þeim sem hafa hagsmuna að gæta, þar eru m.a. íbúar, rekstraraðilar, stofnanir, félög og - hagsmunasamtök, fyrirtæki og í raun öll þau sem láta málið sig varða.
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 3. september 2025 var samþykkt að setja drög að nýrri og endurskoðaðri samþykkt um skilti í Reykjavík í samráðsgátt Reykjavíkurborgar.
Endurskoðuð samþykkt um skilti í Reykjavík er birt í samráðsgátt 5. september 2025 og er frestur til athugasemda 26. september 2025.