Tímalína máls
Í samráðsferli
Í vinnslu
Samráði lokið
Viltu senda inn álit?
Samráðið er opið og öllum er frjálst að taka þátt. Álit eru birt jafnóðum og þau berast.
Boð um þátttöku (5)
Skjöl til samráðs
Tengiliður
Magnús Ársælsson
magnus.arsaelsson@reykjavik.is
Samráð 20
Álitsfrestur: 15.8.2025
Fjöldi álita: 44
Breyting á reglum
Umhverfis- og skipulagssvið
Uppfærsla á verklagsreglum vegna starfsemi stöðvalausra hjóla- og smáfaratækjaleiga á borgarlandi Reykjavíkur
Stutt kynning
Hér gefst borgarbúum og öðrum hagaðilum færi á að koma á framfæri ábendingum varðandi drög að verklagsreglum fyrir starfssemi sem flestir þekkja sem rafhlaupahjólaleigur. Um er að ræða uppfærslu á núgildandi verklagsreglum sem eru frá 2019.
Nánari upplýsingar
Stöðvalausar smáfarartækjaleigur, hlaupahjólaleigur, hafa unnið í samræmi við verklagsreglur sem samþykktar voru á fundi skipulags- og samgönguráðs 3. júlí 2019 og síðar á fundi borgarráðs, áður en nokkur slík leiga tók til starfa í borginni. Reglurnar setja ramma um viðkomandi starfssemi en nú 6 árum eftir samþykkt þeirra er tímabært, með hliðsjón af reynslunni, að fara yfir reglurnar og endurskoða þær. Þær breytingar sem birtast í þessum drögum snúa að mestu leiti að því að skýrar kröfur til rekstaraðila um að fylgja því eftir að tækjunum sé ekki lagt þannig að þau skapi hættu eða óþægindum fyrir aðra vegfarendur.
Íbúar Reykjavíkur og aðrir hagaðilar eru hvattir til að senda inn ábendingar við meðfylgjandi drög að uppfærðum verklagsreglum. Til að einfalda úrvinnslu er óskað eftir því að við skil á ábendingum sem varða einstakar greinar sé vísað í viðkomandi grein verklagsreglnanna og gerð sé, í þeim tilvikum sem það á við, tillaga að textaviðbótum eða breytingum. Umhverfis- og skipulagsráð tekur endanlega ákvörðun um verklagsreglur vegna starfsemi stöðvalausra hjóla- og smáfarartækjaleiga á borgarlandi Reykjavíkur.